
Skagamenn að vonum sáttir að leik loknum. Ljósm. Jón Gautur
Háspenna, dramatík og burst í bikarkeppni karla um páskana
Leikið var í 16. umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu um páskana við misgóðar aðstæður, en líkt og landsmenn fundu á eigin skinni var víða fremur rysjótt veðurfar. Þurfti því að færa áætlaða útileiki inn, þar sem því var við komið, en aðrir þurftu að gjöra svo vel að spila úti. Í síðustu umferð duttu bæði Skallagrímur í Borgarnesi og Víkingur frá Ólafsvík út og því er einungis eitt lið frá Vesturlandi enn þá inni í bikarnum, en það er ÍA á Akranesi.