Íþróttir

true

Hlutu viðurkenningar á uppskeruhátíð Borgfirðings

Hestamannafélagið Borgfirðingur hélt uppskeruhátíð sína síðastliðinn laugardag. Þar var þeim keppendum sem bestum árangri náðu á árinu veitt viðurkenning. Íþróttamanneskja Borgfirðings árið 2026 var kjörin Kristín Eir Holaker Hauksdóttir á Skáney. Í barnaflokki hlaut Kristján Fjeldsted viðurkenningu, í unglingaflokki Kristín Eir, í ungmennaflokki Raluca Schwark, í flokki áhugamana Arna Hrönn Ámundadóttir og í flokki atvinnumanna…Lesa meira

true

Ungmenni á Speedomóti í sundi

Um helgina tóku 15 krakkar frá Sundfélagi Akraness þátt í Speedomóti ÍRB sem haldið var í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. Mótið var fyrir krakka 13 ára og yngri og voru þátttakendur frá Akranesi á aldrinum 8–13 ára. „Það var frábær stemning á mótinu og liðsandinn mjög góður. Krakkarnir stóðu sig frábærlega í lauginni, sýndu mikla baráttu…Lesa meira

true

Átta verkefni á Vesturlandi fengu úr Hvatasjóði

Átta verkefni íþróttafélaga á Vesturlandi fengu í síðustu viku úthlutað tæpum þremur milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Félög á Akranesi fengu tæpar tvær milljónir króna af þeirri upphæð. Hæsta styrkinn á Vesturlandi, 700 þúsund krónur, hlaut Fimleikafélag ÍA fyrir verkefni sem snýr að fimleikum fyrir börn með fatlanir og er unnið í samstarfi við ÍA.…Lesa meira

true

Snæfell tapaði stórt gegn Haukum á Ásvöllum

Snæfell tapaði fyrir Haukum, 119:91, í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöldi. Heimamenn höfðu yfirhöndina frá upphafi og reyndust Snæfellingum erfiðir viðureignar, ekki síst vegna góðrar hittni fyrir utan þriggja stiga línuna. Haukar byrjuðu leikinn af krafti og leiddu 28:17 eftir fyrsta leikhluta. Þeir bættu við forskotið í öðrum…Lesa meira

true

Skallagrímskonur voru ofurliði bornar

Skallagrímur tapaði fyrir Breiðabliki, 49:80, í Bæjarins Beztu deild kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi í gær. Gestirnir úr Kópavogi höfðu yfirhöndina frá upphafi og náðu Borgnesingar aldrei að ógna forystu þeirra að ráði. Breiðablik byrjaði leikinn af krafti og leiddi 25:14 eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir bættu enn við forskotið í öðrum leikhluta, sem fór 23:13,…Lesa meira

true

ÍA tapaði sínum fyrsta leik í Bæjarins Bestu

ÍA tapaði fyrir Breiðabliki, 96:77, í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi á föstudaginn. Skagamenn héldu vel í við heimamenn í upphafi en slakur annar leikhluti reyndist þeim dýrkeyptur. Leikurinn var jafn framan af og leiddu Blikar með aðeins tveimur stigum, 26:24, eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta tóku heimamenn hins…Lesa meira

true

Skallagrímur átti undir högg að sækja gegn Þórsurum

Skallagrímur beið stóran ósigur gegn Þór Þorlákshöfn í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á heimavelli Þórs í Þorlákshöfn í gær. Heimamenn höfðu mikla yfirburði í sóknarleiknum og fögnuðu að lokum öruggum 30 stiga sigri, 120:90. Þórsarar voru mun hittnari en Borgnesingar og nýttu skotfæri sín vel. Þeir hittu úr 61% skota…Lesa meira

true

Styrkja stækkun frisbígolfvallar í Borgarnesi

Verkefnið Frisbígolf í Borgarnesi hlaut nýverið Samfélagsstyrk Krónunnar. „Með styrknum vill Krónan styðja við uppbyggingu fjölbreyttra tækifæra til hreyfingar og útivistar í nærsamfélaginu,“ segir í tilkynningu. Samfélagsstyrkur Krónunnar er veittur árlega til verkefna sem stuðla að jákvæðum áhrifum í nærsamfélögum, meðal annars á sviði lýðheilsu, umhverfismála og samfélagsuppbyggingar. Andri Már Jónsson, meðstjórnandi í Hollvinasamtökum Borgarness,…Lesa meira

true

Keppt í ringó og boccia á Hvammstanga

Sunnudaginn 25. október var háð keppni í ringói í íþróttahúsinu á Hvammstanga. Eftir fjölmarga leiki þar sem vel var tekið á því urðu úrslit að í fyrsta sæti varð USVH-2, í öðru sæti varð UMSB og í þriðja USVH-1. Alls mættu sjö lið til keppni, þ.e. Glóðin Kópavogi, UMSB Borgarbyggð, FEBAK á Akureyri tvö lið,…Lesa meira

true

Þrír vestlenskir íþróttamenn hljóta starfslaun afreksíþróttafólks

Úthlutað hefur verið starfslaunum afreksíþróttafólks ÍSÍ fyrir tímabilið 1. nóvember 2026 til ársloka 2027. Markmiðið er að gera íþróttafólkinu kleift að helga sig íþrótt sinni og keppa við þau bestu á alþjóðavettvangi án þess að þurfa að velja á milli íþróttarinnar og afkomunnar. Úthlutað er í þremur flokkum; A, B og C. Fyrir A starfslaun…Lesa meira