
Hópmynd af þátttakendum á mótinu í ringó. Ljósm. Sigurbjörg Jóhannesdóttir
Keppt í ringó og boccia á Hvammstanga
Sunnudaginn 25. október var háð keppni í ringói í íþróttahúsinu á Hvammstanga. Eftir fjölmarga leiki þar sem vel var tekið á því urðu úrslit að í fyrsta sæti varð USVH-2, í öðru sæti varð UMSB og í þriðja USVH-1. Alls mættu sjö lið til keppni, þ.e. Glóðin Kópavogi, UMSB Borgarbyggð, FEBAK á Akureyri tvö lið, Hrafnar í Eyjafjarðarsveit og USVH Húnaþingi-vestra með tvö lið.