
Skallagrímskonur voru ofurliði bornar
Skallagrímur tapaði fyrir Breiðabliki, 49:80, í Bæjarins Beztu deild kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi í gær. Gestirnir úr Kópavogi höfðu yfirhöndina frá upphafi og náðu Borgnesingar aldrei að ógna forystu þeirra að ráði. Breiðablik byrjaði leikinn af krafti og leiddi 25:14 eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir bættu enn við forskotið í öðrum leikhluta, sem fór 23:13, og staðan var því 27:48 í hálfleik. Skallagrímskonum gekk illa að finna taktinn í sókninni og Blikar héldu áfram að auka forskotið eftir hlé. Þriðji leikhluti fór 10:15 og sá síðasti 12:17. Lokatölur urðu því 49:80.