Samsett mynd: Guðrún Karitas, Kristín og Einar Margeir.

Þrír vestlenskir íþróttamenn hljóta starfslaun afreksíþróttafólks

Úthlutað hefur verið starfslaunum afreksíþróttafólks ÍSÍ fyrir tímabilið 1. nóvember 2026 til ársloka 2027. Markmiðið er að gera íþróttafólkinu kleift að helga sig íþrótt sinni og keppa við þau bestu á alþjóðavettvangi án þess að þurfa að velja á milli íþróttarinnar og afkomunnar. Úthlutað er í þremur flokkum; A, B og C. Fyrir A starfslaun eru greidd 580.000 krónur á mánuði, fyrir B 300.000 krónur og fyrir C 150.000 krónur. Auk launanna fær íþróttafólkið faglegan stuðning frá fagteymi Afreksmiðstöðvar Íslands svo sem á sviði sálfræði, sjúkraþjálfunar, næringarfræði og styrktarþjálfunar og fer umfang hans einnig eftir flokki. Þrír einstaklingar á Vesturlandi fá greidd starfslaun á næsta ári. Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir frjálsíþróttakona úr Borgarfirði og Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona úr Borgarfirði fá úthlutun samkvæmt B flokki. Þá fær Einar Margeir Ágústsson sundmaður í ÍA úthlutun samkvæmt C flokki.