Fréttir

true

Margrét í dýraverndarmálin

Margrét Marteinsdóttir hefur verið ráðin sem fulltrúi Dýraverndarsambands Íslands (DÍS). Dýraverndarsambandið er elsta dýravelferðarfélag landsins, stofnað 1914 og hefur verið leiðandi í baráttunni fyrir velferð og réttindum dýra á Íslandi. Dýraverndarsambandið beitir sér fyrir betri löggjöf og bættu eftirliti með velferð dýra, ábyrgu dýrahaldi og leggur áherslu á að efla opinbera umræðu um dýravelferð. Margrét…Lesa meira

true

Stækkun Uglukletts komin í útboð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur falið Eflu að bjóða út stækkun og endurbætur á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi. Nýbyggingin verður 845 fermetrar, svipað stór og fyrri bygging á lóðinni. Búið er að fullvinna útboðsgögn og óskaði Efla síðastliðinn þriðjudag, fyrir hönd Borgarbyggðar, eftir tilboðum í byggingu skólans. Verklok framkvæmda eru fyrirhuguð 31. ágúst 2027. Kostnaðaráætlun verður ekki…Lesa meira

true

Engin riða greindist í sláturfé í haust

„Nú er rannsóknum á heilasýnum sem tekin voru í sláturhúsum um land allt haustið 2025 lokið. Rannsóknirnar fóru fram hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og engin sýni greindust jákvæð með tilliti til riðu,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Einungis eitt riðutilfelli hefur því greinst á árinu 2025, en það var í Skagafirði…Lesa meira

true

Samþykkja að breyta skilgreiningu lóðar fyrir landeldi í iðnaðarlóð

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti í desember sl. að auglýsa tillögu að breytingum á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Meðal þess sem lagt var til er að athafnasvæðið AT5 austan til á Grundartangasvæðinu verði skilgreint sem „iðnaðarsvæði“ í stað skilgreiningarinnar „atvinnusvæði.“ Allt svæðið sem um ræðir er 49 ha að stærð og heyrir undir Faxaflóahafnir, sem hafði farið fram…Lesa meira

true

Ungur maður á uppleið í bílaviðgerðum

Rætt við Jóhann Eiríksson bifvélavirkja hjá JE bílverki í Ólafsvík Jóhann Eiríksson rekur bifreiðaverkstæðið JE bílverk við Dalbraut í Ólafsvík. Afi hans Gautur Hansson hafði í nokkur ár áður rekið bifreiðaverkstæði undir nafninu G.Hansen. Lét Gautur af starfi fyrir nokkrum árum og keypti Jóhann þá verkstæðið af afa sínum og breytti nafninu. Gautur hélt samt…Lesa meira

true

Samið um öryggisstjórnunarkerfi

Samningur hefur verið undirritaður milli Slysavarnafélagsins Landsbjargar og nýsköpunarfyrirtækisins Alda Öryggi um notkun á öryggisstjórnunarkerfi Öldunnar um borð í björgunarskipum Landsbjargar og samvinnu um áframhaldandi þróun kerfisins. „Markmið samstarfsins er að vinna að því að Íslendingar verði áfram leiðandi í öryggismálum sjómanna en ekki síst að færa öryggisstjórnun, þjálfun og yfirsýn um stöðu áhafna björgunarskipa…Lesa meira

true

Drangar semja um að nota vörumerki Spar

Drangar, móðurfélag Samkaupa, hafa skrifað undir samning við alþjóðlegu verslanakeðjuna Spar International um notkun vörumerkisins hér á landi. Markmið samningsins er að í lok árs 2027 muni verslanir undir merkjum 10–11, Krambúðar og Kjörbúðar bera alþjóðlegt vörumerki Spar. Eftir innleiðinguna mun Samkaup selja matvöru undir vörumerkjunum Prís, Nettó og Spar. Samkaup hf. er verslanafyrirtæki á…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður verður þátttakandi í samstarfi um skammtímadvöl

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar ákvað á fundi sínum 27. janúar síðastliðinn að bæjarfélagið verði þátttakandi ásamt öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi um uppbyggingu úrræða um skammtímadvöl fyrir fatlaða. Samþykkt var tillaga fulltrúa minnihlutans þess efnis að bæjarstjóra verði falið að undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu skammtímadvalar fyrir hönd bæjarstjórnarstjórnar Akraness. Meirihluti bæjarstjórnar klofnaði í afgreiðslu málsins og var hún…Lesa meira

true

Stýrivextir verða áfram 7,25 prósent

Seðlabankinn tilkynnti í morgun þá ákvörðun að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25%. Undirliggjandi ástæða þess að stofnunin lækkar ekki vexti er sú að verðbólga mælist nú 5,2% og hefur aukist á ný. Stýrivextir hér á landi eru með þeim hæstu í Evrópu. Þessi ákvörðun Seðlabankans nú hefur mikil áhrif á fjárhag…Lesa meira

true

Ný net í stað þeirra sem slitna undan metafla

Ekkert lát er á afburða góðum aflabrögðum í Breiðarfirði. Í gær tvílandaði netabáturinn Bárður SH rúmlega 52 tonnum og litli Bárður 17 tonnum. Auk þess hafa handfærabátar ásamt línu- og dragnótarbátum gert mjög góðar veiðiferðir. Þegar vel fiskast hjá netabátum eins og Ólafi Bjarnasyni SH frá Ólafsvík hefur það gerst að netin slitna. Þarf þá…Lesa meira