Fjárrekstur af fjalli. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Ljósm. mm

Engin riða greindist í sláturfé í haust

„Nú er rannsóknum á heilasýnum sem tekin voru í sláturhúsum um land allt haustið 2025 lokið. Rannsóknirnar fóru fram hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og engin sýni greindust jákvæð með tilliti til riðu,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Einungis eitt riðutilfelli hefur því greinst á árinu 2025, en það var í Skagafirði í september síðastliðnum. Greindist það í kind sem sýndi grunsamleg einkenni heima á bæ. Niðurskurður fór fram fljótlega eftir greiningu. Ekki liggur enn ljóst fyrir hversu margar kindur á bænum voru með riðu, þar sem rannsóknum á þeim sýnum er ekki lokið.“