Stýrivextir verða áfram 7,25 prósent

Seðlabankinn tilkynnti í morgun þá ákvörðun að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25%. Undirliggjandi ástæða þess að stofnunin lækkar ekki vexti er sú að verðbólga mælist nú 5,2% og hefur aukist á ný. Stýrivextir hér á landi eru með þeim hæstu í Evrópu. Þessi ákvörðun Seðlabankans nú hefur mikil áhrif á fjárhag þorra landsmanna, einkum þeirra sem skulda. Óverðtryggðir vextir á húsnæðislánum, sem eru almennt yfir 8%, eru ólíklegir til að lækka á næstunni. Um leið hækkar höfuðstóll verðtryggðra fasteignalána vegna verðbólgunnar á sama tíma og fasteignaverð er tekið að lækka vegna tregðu á markaði undanfarið misseri.