Horft í suðurátt yfir Katanestjörn og Grundartanga. Ljósm. úr skipulagslýsingunni.

Samþykkja að breyta skilgreiningu lóðar fyrir landeldi í iðnaðarlóð

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti í desember sl. að auglýsa tillögu að breytingum á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Meðal þess sem lagt var til er að athafnasvæðið AT5 austan til á Grundartangasvæðinu verði skilgreint sem „iðnaðarsvæði“ í stað skilgreiningarinnar „atvinnusvæði.“ Allt svæðið sem um ræðir er 49 ha að stærð og heyrir undir Faxaflóahafnir, sem hafði farið fram á breytingarnar. Er farið fram á breytinguna ekki síst lagt vegna fyrirætlana um umfangsmikið landeldi á laxi á 15 hekturum innan svæðisins. Fram kemur í tillögunni að það sé mat Faxaflóahafna að meiri eftirspurn verði eftir iðnaðarlóðum en athafnalóðum og var því farið fram á að öllu svæðinu yrði breytt úr athafnasvæði í iðnaðarsvæði til að mæta þeirri eftirspurn. Áætlað er fiskeldi á 15 ha lóð og á öðrum lóðum verður hreinleg iðnaðarstarfsemi en minnt var á ákvæði aðalskipulags varðandi lítt mengandi starfsemi og að óheimilt væri að hefja starfsemi sem hefur í för með sé losun flúors eða brennisteinstvíoxíðs.