
Akraneskaupstaður verður þátttakandi í samstarfi um skammtímadvöl
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar ákvað á fundi sínum 27. janúar síðastliðinn að bæjarfélagið verði þátttakandi ásamt öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi um uppbyggingu úrræða um skammtímadvöl fyrir fatlaða. Samþykkt var tillaga fulltrúa minnihlutans þess efnis að bæjarstjóra verði falið að undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu skammtímadvalar fyrir hönd bæjarstjórnarstjórnar Akraness. Meirihluti bæjarstjórnar klofnaði í afgreiðslu málsins og var hún samþykkt með fjórum atkvæðum minnihlutans og Guðmundi Ingþóri Guðjónssyni (D); þrír greiddu atkvæði á móti en tveir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins. Þar með fékkst ákveðin niðurstaða í mál sem valdið hefur nokkrum titringi innan bæjarstjórnar undanfarnar vikur eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns.