Spar er í grunninn hollenskt fyrirtæki sem rekur í dag 13.800 verslanir í 50 löndum, flestar í Evrópu.

Drangar semja um að nota vörumerki Spar

Drangar, móðurfélag Samkaupa, hafa skrifað undir samning við alþjóðlegu verslanakeðjuna Spar International um notkun vörumerkisins hér á landi. Markmið samningsins er að í lok árs 2027 muni verslanir undir merkjum 10–11, Krambúðar og Kjörbúðar bera alþjóðlegt vörumerki Spar. Eftir innleiðinguna mun Samkaup selja matvöru undir vörumerkjunum Prís, Nettó og Spar.