Fréttir

true

Kostir fyrir félög að vera á Almannaheillaskrá

Ungmennafélag Íslands vekur athygli á að ýmiss konar kostir fylgja því fyrir félög að vera á Almannaheillaskrá. Skráningin veitir víðtækar undanþágur frá skattlagningu, undanþágu frá tekjuskatti, fjármagnstekjuskatti og erfðafjárskatti auk endurgreiðslu á virðisaukaskatti á vinnu iðnaðarmanna við húsnæði sem alfarið er í eigu viðkomandi félags og svo má lengi telja. Þá geta íþrótta- og ungmennafélög…Lesa meira

true

Byggðarráð hafnar almennri atkvæðagreiðslu öðru sinni

Byggðarráð Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að hafna öðru sinni erindi Sólar til framtíðar um að safna undirskriftum í því skyni á fá aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 fellt úr gildi. Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns í nóvember óskaði Sól til framtíðar eftir því að fá að efna til undirskriftasöfnunar svo efnt verði til almennrar…Lesa meira

true

Fjölmargar framkvæmdir við hafnir Snæfellsbæjar

Framkvæmdir eru hafnar við lengingu Norðurbakka í Ólafsvík. Um er að ræða 100 metra lengingu á stálþili með 7 – 8 metra dýpi ásamt fyrirstöðugarði og 30 metra grjótvörn við enda þilsins. Þessum hluta framkvæmdanna á að ljúka í maí 2026. Gert er ráð fyrir að bjóða út framkvæmdir við þekju, lagnir og fleira nú…Lesa meira

true

Innkalla kjúkling frá Matfugli

Matfugl hefur sent upplýsingar um innköllun á ferskum kjúkling vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur í samráð við Matvælastofnun innkallað vöruna. Eingöngu er verið að innkalla eina framleiðslulotu með rekjanleikanúmerinu 011-25-49-6-64 með tveimur pökkunardögum. Vörumerki: Ali og Bónus Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ Lotunúmer: 011-25-49-6-64 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar, kryddleginn heill fugl),…Lesa meira

true

Tómas spilaði fullkominn leik í keilunni

Í gær fór fram deildarleikur í annarri deild í keilu. Spilað var í keilusalnum við Vesturgötu á Akranesi. Ellefu lið spila í deildinni og þar af koma þrjú af Akranesi. Í gær kepptu ÍA-B og ÍA-C. Það fyrrnefnda bar sigur úr býtum, en það skipa þau Jóhanna Nína Karlsdóttir, Anton Kristjánsson og Tómas Freyr Garðarsson.…Lesa meira

true

Framsókn með leiðtogaprófkjör í Borgarbyggð

Á almennum félagsfundi í Framsóknarfélagi Borgarbyggðar í gærkvöldi var ákveðið að fram fari leiðtogaprófkjör um efsta sæti framboðslistans fyrir kosningarnar 16. maí. Valið stóð á milli þess eða uppstillingar á framboðslista. Kosning um oddvita mun fara fram laugardaginn 21. mars. Á fundinum var uppstillingarnefnd kosin og mun nú hefja störf. Viku eftir leiðtogaprófkjörið mun listinn…Lesa meira

true

Jöfnun atkvæðavægis fækkar röddum dreifðra byggða

Byggðarráð Borgarbyggðar telur að framundan sé mikið verk að tryggja áframhaldandi verðmætasköpun í sátt við nærsamfélagið um land allt. Að mati ráðsins skjóti því skökku við að sett sé í forgang að fækka röddum hinna dreifðu byggða á Alþingi Íslendinga. Þetta kemur fram í umsögn ráðsins sem send verður í samráðsgátt stjórnvalda vegna áforma um…Lesa meira

true

Snæfellsbær kaupir raðhús til útleigu

Snæfellsbær hefur fest kaup á tveimur raðhúsum við Helluhól á Hellissandi. Þau eru ætluð til leigu fyrir íbúa sveitarfélagsins sem eru 60 ára og eldri. Húsin eru ný og bæði 122 fermetrar að stærð að meðtöldum innbyggðum bílskúr. Húsin eru fullbúin og standa nú íbúum til boða.Lesa meira

true

Hækka grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar

Velferðar- og fræðslunefnd Hvalfjarðarsveitar hefur lagt til við sveitarstjórn að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar einstaklings verði hækkuð úr 241.103 krónum í 252.608 krónur eða um 4,77%. Eins og fram kemur í annarri frétt Skessuhorns hefur byggðarráð Borgarbyggðar lagt til að hliðstæð fjárhagsaðstoð í Borgarbyggð verði lækkuð í 200.000 krónur. Jafnframt kom fram að samkvæmt könnun var fjárhagsastoð…Lesa meira

true

Kynningarfundur fyrir frumkvöðla

Í þriðju viku janúar mun KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóður og Vísindagarðar fara í sameiginlega hringferð um landið til að halda opna kynningarfundi ásamt staðbundnum samstarfsaðilum fyrir alla sem hafa áhuga á að setja af stað verkefni í nýsköpun eða þróa viðskiptahugmynd. „Við verðum með viðburð hjá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri fimmtudaginn 22. janúar kl.…Lesa meira