
Innkalla kjúkling frá Matfugli
Matfugl hefur sent upplýsingar um innköllun á ferskum kjúkling vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur í samráð við Matvælastofnun innkallað vöruna. Eingöngu er verið að innkalla eina framleiðslulotu með rekjanleikanúmerinu 011-25-49-6-64 með tveimur pökkunardögum.
Vörumerki: Ali og Bónus
Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
Lotunúmer: 011-25-49-6-64 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar, kryddleginn heill fugl), pökkunardagur 08.01.2026 og 09.01.2026
Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir.
Neytendur sem keypt hafa vöruna geta skilað vörunni til verslunar til endurgreiðslu eða til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsveit.