Kostir fyrir félög að vera á Almannaheillaskrá

Ungmennafélag Íslands vekur athygli á að ýmiss konar kostir fylgja því fyrir félög að vera á Almannaheillaskrá. Skráningin veitir víðtækar undanþágur frá skattlagningu, undanþágu frá tekjuskatti, fjármagnstekjuskatti og erfðafjárskatti auk endurgreiðslu á virðisaukaskatti á vinnu iðnaðarmanna við húsnæði sem alfarið er í eigu viðkomandi félags og svo má lengi telja. Þá geta íþrótta- og ungmennafélög á landinu, sem eru á skránni, nýtt frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna gjafa og framlaga til lögaðila sem uppfylla tiltekin skilyrði og eru í almannaheillaskrá Skattsins.