
Lið ÍA og Hauka mættust í gærkvöldi í 16. umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Það blés ekki byrlega fyrir ÍA framan af fyrri hálfleik því Ragnheiður Tinna Hjaltalín skoraði mark fyrir Hauka á 26.mínútu. Erla Karítas Jóhannesdóttir jafnaði metin fyrir ÍA á 42.mínútu og hún var aftur á ferðinni…Lesa meira







