
Jón Gunnlaugsson, björgunarskipt Björgunarfélags Akraness
Vélarvana báti komið til hafnar á Akranesi
Skemmtibátur varð vélarvana skammt utan við Akraneshöfn um kl. 20:30 í gærkvöldi. Um borð voru tveir menn og óskuðu þeir aðstoðar. Björgunarskipið Jón Gunnlaugsson frá Björgunarfélagi Akraness var ræstur út og dró bátinn til hafnar. Lauk aðgerðum um kl. 22:00. Um tíma var talið að skemmtibáturinn hefði misst talsvert af olíu í sjóinn og flaug því þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR yfir svæðið, en hún var í æfingaflugi í Borgarfirði. Í ljós kom að engin olía hafði farið í sjóinn.