Fréttir

true

Minningarstund Englaforeldra í Akraneskirkju á þriðjudagskvöldið

Í tilefni af alþjóðlegum degi barnsmissis verður minningarstund í Akraneskirkju þriðjudagskvöldið 15. október nk. klukkan 20:00. Séra Þráinn Haraldsson leiðir stundina og Guðrún Árný syngur. „Við ætlum að minnast allra þeirra barna sem létust í móðurkviði, í og eftir fæðingu. Stundin er opin öllum óháð því hvort fólk hafi misst barn eða ekki. Stundinni verður…Lesa meira

true

Fjallað um hinsegin lífsgæði í framhaldsskólum

„Hvernig byggjum við upp öruggara skólaumhverfi fyrir hinsegin ungmenni á landsbyggðinni? Hvernig getum við bætt skólaumhverfið, unnið gegn jaðarsetningu og stuðlað að meiri inngildingu hinsegin nemenda? Hvernig getum við aukið þann stuðning sem hinsegin nemendur og fjölskyldur þurfa á að halda í skólanum á landsbyggðinni?“ Þetta voru þrjár grundvallarspurningar sem velt var upp á málþingi…Lesa meira

true

Fyrsta verkáfanga lokið á Sæunnargötu

Framkvæmdum við malbikun á fyrsta verkáfanga á endurbyggingu Sæunnargötu í Borgarnesi er nú að ljúka og við tekur annar verkáfangi. Það er Borgarverk ásamt öðrum verktökum sem nú er að hefja endurbyggingu efri hluta götunnar eins og sjá má á þessum myndum frá því á fimmtudaginn.Lesa meira

true

Hundrað ára afmæli VLFA fagnað – Myndasyrpa

Í tilefni af 100 ára afmæli Verkalýðsfélags Akraness var opið hús í dag, föstudag, á skrifstofu félagsins á Þjóðbraut 1 milli klukkan 13 og 17. Léttar veitingar voru í boði og vel mætt. Ljósmyndari Skessuhorns kom við um miðjan dag og tók nokkrar myndir af gestum og gangandi. Í kvöld verða svo tónleikar með Helga…Lesa meira

true

Framkvæmdir við strandstíg í Borgarnesi

Við Kveldúlfshöfða í Borgarnesi eru nú framkvæmdir við timburbrú, sem tengist saman við núverandi strandstíg framan við íbúðabyggðina í Kveldúlfsgötu. Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar voru nýverið lögð fram hönnunargögn, verklýsing og kostnaðaráætlun vegna endurhönnunar á strandstígnum. Sjóvarnargarður verður hækkaður, göngustígur malbikaður og aðgengi að fjörunni við Kveldúlfsgötu verður bætt.Lesa meira

true

Dúna og Dino nýir þjálfarar hjá ÍA

Dúna Sturlaugsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍA með áherslu á styrktarþjálfun og þróun yngri kvenna leikmanna hjá félaginu. Dúna hefur mikla reynslu, bæði sem þjálfari og leikmaður. Hún er með UEFA-B þjálfaragráðu og er íþróttafræðingur með master í íþróttavísindum og þjálfun, sem og heilsuþjálfun og kennslu. Ásamt þjálfuninni starfar Dúna sem…Lesa meira

true

Allskyns í lífsnámsviku í MB

Líkt og undanfarin skólaár var í þessari viku svokölluð lífsnámsvika í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar vinna allir staðnemar skólans að ákveðnu þema sem að þessu sinni var ,,Allskyns“ með áherslu á kynlíf, kynhneigð, kynheilbrigði og samskipti. Lífsnámsvika markar ákveðið uppbrot á hefðbundinni kennslu þar sem nemendur fá smá ,,pásu“ frá verkefnavinnu. Eru þeir almennt mjög ánægðir…Lesa meira

true

Segir Viðskiptaráð Íslands veruleikafirrt

Frumvarp til fjárlaga næsta árs liggur nú fyrir Alþingi. Fjárlagafrumvarpið hefur vakið athygli, eins og venja er þegar ríkisstjórnir leggja fram áætlanir um tekjur og sameiginleg útgjöld þjóðarinnar til næstu tólf mánaða. Hægt er að senda inn umsagnir við öll lagafrumvörp og þar á meðal fjárlagafrumvarpið. Yfir 60 umsagnir um frumvarpið bárust. Ragnar Þór Ingólfsson…Lesa meira

true

Brjóstaskimun gerð nánast gjaldfrjáls

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að lækka almennt gjald fyrir brjóstaskimun úr 6.098 kr. í 500 kr. og tekur breytingin gildi 14. október. Skimun er mikilvæg forsenda snemmgreiningar brjóstakrabbameina og hefur mikinn ávinning fyrir einstaklinga og samfélag. Snemmgreining þýðir einfaldari meðferð, bættar lífslíkur og dregur úr kostnaði heilbrigðiskerfisins. Willum Þór kynnti ákvörðun sína á…Lesa meira

true

Landsbjörg tekur í dag formlega á móti nýrri Björg sem fer svo í Rif

Í dag klukkan 11 verður Björgun 24, alþjóðleg ráðstefna Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldin er annað hvert ár, sett í Silfurbergi í Hörpu. Við það tilefni verður nýjasta björgunarskip Landsbjargar, Björg, sem verður staðsett í Rifi, afhent félaginu formlega og tilkynnt um áframhald endurnýjunar björgunarskipaflota félagsins. Ráðstefnunni verður síðan fram haldið til sunnudags. Á sunnudaginn verður…Lesa meira