
Segir Viðskiptaráð Íslands veruleikafirrt
Frumvarp til fjárlaga næsta árs liggur nú fyrir Alþingi. Fjárlagafrumvarpið hefur vakið athygli, eins og venja er þegar ríkisstjórnir leggja fram áætlanir um tekjur og sameiginleg útgjöld þjóðarinnar til næstu tólf mánaða. Hægt er að senda inn umsagnir við öll lagafrumvörp og þar á meðal fjárlagafrumvarpið. Yfir 60 umsagnir um frumvarpið bárust. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR skrifar pistil á síðu félagsins og leggur þar út frá umsögn sem Viðskiptaráð sendi inn um fjárlagafrumvarpið. „Það er eðlilegt að ólíkum hagsmunahópum greini á um fjárlög. Hverjum þykir sinn fugl fagur og skiptar skoðanir eru á því hvernig beri að ráðstafa fé úr sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar,“ skrifar Ragnar Þór. „Ein slík umsögn stingur hins vegar í stúf, en hún kemur frá Viðskiptaráði Íslands sem leggur til; „9 hagræðingartillögur um bætta afkomu,“ sem ríkið gæti tileinkað sér til að skila hallalausum fjárlögum 2025. Þannig væri hægt, samkvæmt Viðskiptaráði, í níu einföldum skrefum að reka ríkissjóð með 6,5 milljarða krón afgangi í stað 41 ma.kr. halla. Þar ber helst að nefna þá tillögu ráðsins að ríkið svíki loforð sín í síðustu kjarasamningum og falli frá öllum aðgerðum sem samþykktar voru til að liðka fyrir samningum launafólks og atvinnurekenda. Viðskiptaráð hvetur þannig ríkið til þess að hætta við samþykktar hækkanir barnabóta, húsnæðisbóta og hámarksgreiðslna fæðingarorlofssjóðs og draga til baka samþykkt fyrir gjaldfrjálsum skólamáltíðum og spara sér þar með 14 milljarða.“