
Fyrsta verkáfanga lokið og opnað inn á Borgarbraut. Ljósm. hig
Fyrsta verkáfanga lokið á Sæunnargötu
Framkvæmdum við malbikun á fyrsta verkáfanga á endurbyggingu Sæunnargötu í Borgarnesi er nú að ljúka og við tekur annar verkáfangi. Það er Borgarverk ásamt öðrum verktökum sem nú er að hefja endurbyggingu efri hluta götunnar eins og sjá má á þessum myndum frá því á fimmtudaginn.