
Nemendur kynntu verk sín út um allan skólann. Ljósm. hig
Allskyns í lífsnámsviku í MB
Líkt og undanfarin skólaár var í þessari viku svokölluð lífsnámsvika í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar vinna allir staðnemar skólans að ákveðnu þema sem að þessu sinni var ,,Allskyns“ með áherslu á kynlíf, kynhneigð, kynheilbrigði og samskipti. Lífsnámsvika markar ákveðið uppbrot á hefðbundinni kennslu þar sem nemendur fá smá ,,pásu“ frá verkefnavinnu. Eru þeir almennt mjög ánægðir með þetta uppbrot á skólastarfinu. Mjög góður andi sveif yfir vötnum í MB þessa vikuna, líkt og endranær. Kynning á verkefnavinnu fór fram síðdegis í gær.