Fréttir

true

Margir ökumenn að flýta sér

Í liðinni viku voru afskipti höfð af um 80 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar af mældust sex ökumenn yfir 130 km hraða á klst. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og nokkrir ökumenn voru kærðir vegna vankanta á hleðslu eða frágangi farms. Þriggja bíla árekstur varð…Lesa meira

true

Fyrsta deildarkeppnismót Píludeildar Skallagríms

Píludeild Skallagríms var stofnað í apríl á þessu ári en deildin hefur aðstöðu í Grillhúsinu í Borgarnesi. Opið er fyrir áhugasama öll þriðjudagskvöld að prófa sig áfram, fá handleiðslu og ná tökum á helstu undirstöðum íþróttarinnar. Einnig eru æfingar fyrir unglinga og fullorðna á föstudögum og laugardögum í vetur en hægt er að fylgjast með…Lesa meira

true

Leiðir til byggðafestu og eflingar nýsköpunar á sauðfjárræktarsvæðum

Leiðir til byggðafestu er verkefni sem snýr að eflingu nýsköpunar á sauðfjárræktarsvæðum á Íslandi. Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV), Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) standa sameiginlega að verkefninu. Það er unnið með styrk frá innviðaráðuneytinu til að efla byggð á þeim landssvæðum sem eiga mest undir sauðfjárrækt. Þar er litið…Lesa meira

true

„Það er ábyrgðarhluti að vera forystumaður í stéttarfélagi“

Ítarlegt viðtal við Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness. Félagið fagnar nú 100 ára afmæli Verkalýðsfélag Akraness fagnar 100 ára afmæli sínu á næstunni en það var stofnað 14. október árið 1924. Í tilefni dagsins verður opið hús næsta föstudag, 11. október, milli klukkan 13 og 17 á skrifstofu félagsins á Þjóðbraut 1. Þar verður boðið…Lesa meira

true

Fyrsti snjórinn á sunnanverðu landinu

Í gærkvöldi snjóaði í fjöll um sunnan- og suðvestanvert landið. Fyrstu samgöngutruflanir haustsins gerðu vart við sig á Hellisheiði. Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út vegna fjölda bíla í vandræðum víða í Kömbunum. Talsverð hálka hafði myndast og snjór sem saman gerðu það að verkum að fjöldi bíla komust ekki leiðar sinnar og einhverjir…Lesa meira

true

Eyja- og Miklaholtshreppur gaf FSN afmælisgjöf

Fjölbrautaskóli Snæfellinga hélt upp á 20 ára afmæli sitt nú í haust eins og ítarlega hefur verið sagt frá í Skessuhorni. Í tilefni afmælisins gaf Eyja- og Miklaholtshreppur skemmtilega gjöf til skólans; borðtennisboð, spaða og kúlur. Mikil ánægja er meðal nemenda og starfsmanna að fá borðið, en það leysir af hólmi annað sem komið var…Lesa meira

true

Tóku þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

Síðasta föstudag tóku nemendur og starfsmenn Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Hlaupið fór fram í sólríku og köldu veðri og gekk í alla staði mjög vel. Nemendur gátu valið um 1 km, 2,5 km, 5 km eða 10 km. Markmið hlaupsins er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig…Lesa meira

true

Lögðu sitt af mörkum til að búa til skjól

Útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi tóku á dögunum þátt í verkefni ásamt kennurum skólans á skógræktarsvæðinu við þjóðveginn til Akraness. Þau gróðursettu nokkur tré; birki, ilmreyni, sitkagreni og aspir.  Fram kemur á vef Skógræktarfélags Akraness að gróðursetningin hafi gengið fljótt og vel hjá þessu röska unga fólki sem öll lögðu sig fram um að vanda…Lesa meira

true

Ofurbekkjaleikar 2024 í GB

Föstudaginn 27. september fóru fram hinir árlegu Ofurbekkjaleikar í Grunnskólanum í Borgarnesi og var keppt á Skallagrímsvelli. Þar kepptu 8., 9. og 10. bekkur í óhefðbundnum íþróttagreinum. Í ár var keppt í stígvélakasti, reiptogi, grjónapokakasti, óhefðbundnum skotbolta, óhefðbundnu boðhlaupi og í einni grein sem snerist um það að klæða í bol. Úrslit fóru á þann…Lesa meira

true

Landsmót barnakóra fór fram á Hvolsvelli

Skólakór Grundaskóla á Akranesi var þátttakandi á Landsmóti barnakóra í ár. Ólíkt öðrum mótum er ekki keppt í kórsöng heldur snýst mótið um samveru og samkennd. Ellefu kórar tóku þátt í ár og þar af voru 200 börn. Fyrsta slíka kóramótið var haldið árið 1977 í Háskólabíói í Reykjavík. Markmið þeirra er að efla tónmennt…Lesa meira