
Yfir tvö hundruð börn tóku þátt. Ljósm. grundaskoli.is
Landsmót barnakóra fór fram á Hvolsvelli
Skólakór Grundaskóla á Akranesi var þátttakandi á Landsmóti barnakóra í ár. Ólíkt öðrum mótum er ekki keppt í kórsöng heldur snýst mótið um samveru og samkennd. Ellefu kórar tóku þátt í ár og þar af voru 200 börn. Fyrsta slíka kóramótið var haldið árið 1977 í Háskólabíói í Reykjavík. Markmið þeirra er að efla tónmennt og þá sérstaklega kórsöng í skólum landsins.