
Nemendur sáttir eftir daginn. Ljósm. fva
Lögðu sitt af mörkum til að búa til skjól
Útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi tóku á dögunum þátt í verkefni ásamt kennurum skólans á skógræktarsvæðinu við þjóðveginn til Akraness. Þau gróðursettu nokkur tré; birki, ilmreyni, sitkagreni og aspir.