Fréttir

true

Bilun í dreifikerfi raforku hafði mestar afleiðingar í Mývatnssveit

Íbúar um vestanvert landið tóku eftir að rafmagnið blikkaði í hádeginu í gær. Þá varð truflun í flutningskerfi Landsnets í kjölfar útleysingar hjá Norðuráli á Grundartanga. Rafmagn fór hins vegar ekki af á sunnanverðu Vesturlandi en um norðanvert landið varð víðtækt straumleysi sem varði í einn til þrjá klukkutíma víðast hvar en mun lengur í…Lesa meira

true

Stolið úr dósagámum Brákar

Ein af stærstu fjáröflunum margra björgunarsveita á landsbyggðinni er söfnun einnota drykkjarvöruumbúða. Svokallaðir dósagámar eru víða staðsettir og getur almenningur lagt björgunarsveitunum lið með að skila einnota dósum og flöskum í þá. Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi er með nokkra slíka dósagáma, meðal annars við sumarbústaðahverfin í Svignaskarði og vestur á Mýrum. Undanfarið hefur talsvert borið…Lesa meira

true

Töluverðar endurbætur á innviðum í Snæfellsjökulsþjóðgarði

Framkvæmdir hafa staðið yfir á Djúpalónssandi, Saxhól og Svalþúfu í Snæfellsjökulsþjóðgarði síðustu daga og vikur. Unnið hefur verið við að bæta aðgengi og öryggi gesta á svæðinu og um leið að stuðla að verndun náttúru svæðisins. Á Saxhól var frágangur á útsýnispalli kláraður en þar var komið fyrir hraungrýti og gerðar náttúrulegar sessur sem hægt…Lesa meira

true

Nýtt anddyri á Jaðri í Ólafsvík

Þessa dagana er unnið að endurbótum á anddyrinu Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars í Ólafsvík. Auk stækkunar er markmið að það verði bjartara og betra eftir endurbæturnar og aðgengið að því stórbætt. Anddyrið hefur verið tæpir fimm fermetrar en eftir breytingarnar verður það rúmir 26 fm. Til að bæta aðgengi verða jafnframt settar upp rafdrifnar hurðir…Lesa meira

true

Mjólkurkvóti á markað

Næsti markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn 1. nóvember. Að hámarki er hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega. Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is. Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 10. október nk.Lesa meira

true

Uppteknir við að skoða norðurljósin

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 67 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar af voru tveir ökumenn sem voru mældir yfir 150 km hraða/klst. Um afdrif þess sem hraðast ók má lesa um í Skessuhorni vikunnar. Lögregla hafði afskipti af bifreið í vikunni sem rásaði full mikið á veginum.…Lesa meira

true

Skammvinnt rafmagnsleysi á Mýralínu í nótt

„Stutt rafmagnsleysi verður á Mýralínu vegna flutnings á farmi undir línur í nótt. Dagsetning 03.10.2024 frá kl. 00:01 kl. 03:00. Rafmagnsleysið verður stutt en ekki er hægt að tímasetja þetta nánar,“ segir í tilkynningu frá Rarik.Lesa meira

true

Landbúnaðarháskóli Íslands hlaut viðurkenninguna Bronsdekkið

Ársfundur Orkustofnunar var haldinn í Hofi á Akureyri síðastliðinn fimmtudag. Þar var hvatakerfi um orkuskipti bifreiða ríkisstofnana hleypt af stokkunum. Landbúnaðarháskóli Íslands fékk viðurkenninguna Bronsdekkið en 37% bílaflota skólans eru hreinorkubílar. Alls fengu 24 stofnanir og fyrirtæki boð um að koma og veita viðurkenningu viðtöku. Í þessum fyrsta áfanga er horft til bílaflota sem eru…Lesa meira

true

Sokkaboðsund og blómlegir heilsudrykkir í miðnætursundi

Yfir 80 manns mættu í miðnætursund í sundlaug Stykkishólms síðastliðið fimmtudagskvöld. Boðið var upp á heilsudrykk með ætum blómum, notaleg lýsing var sett upp og spiluð tónlist. Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðins, var með sögustund í heitum potti áður en Magnús Bæringsson, íþrótta – og tómstundafulltrúi sveitarfélagsins Stykkishólms, bauð upp á Mullers æfingar á sundlaugarbakkanum. Keppt…Lesa meira