
Nýtt anddyri á Jaðri í Ólafsvík
Þessa dagana er unnið að endurbótum á anddyrinu Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars í Ólafsvík. Auk stækkunar er markmið að það verði bjartara og betra eftir endurbæturnar og aðgengið að því stórbætt. Anddyrið hefur verið tæpir fimm fermetrar en eftir breytingarnar verður það rúmir 26 fm. Til að bæta aðgengi verða jafnframt settar upp rafdrifnar hurðir til að auðvelda umgang. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi yfir í nokkrar vikur. Á meðan verður inngangurinn fyrir framan skrifstofuna notaður. Gengið inn hægra megin frá Hjarðartúni. Þetta kemur fram á upplýsingasíðu Snæfellsbæjar.