Neðra bílastæði á Djúpalónssandi. Ljósm. Hákon Ásgeirsson

Töluverðar endurbætur á innviðum í Snæfellsjökulsþjóðgarði

Framkvæmdir hafa staðið yfir á Djúpalónssandi, Saxhól og Svalþúfu í Snæfellsjökulsþjóðgarði síðustu daga og vikur. Unnið hefur verið við að bæta aðgengi og öryggi gesta á svæðinu og um leið að stuðla að verndun náttúru svæðisins. Á Saxhól var frágangur á útsýnispalli kláraður en þar var komið fyrir hraungrýti og gerðar náttúrulegar sessur sem hægt er að tylla sér á. Sett voru niður steinþrep af pallinum sem falla vel að umhverfi hans en einnig voru gerðar grjóthleðslur í kringum sjónskífu sem stendur á toppi gígsins.

Töluverðar endurbætur á innviðum í Snæfellsjökulsþjóðgarði - Skessuhorn