
Bilun í dreifikerfi raforku hafði mestar afleiðingar í Mývatnssveit
Íbúar um vestanvert landið tóku eftir að rafmagnið blikkaði í hádeginu í gær. Þá varð truflun í flutningskerfi Landsnets í kjölfar útleysingar hjá Norðuráli á Grundartanga. Rafmagn fór hins vegar ekki af á sunnanverðu Vesturlandi en um norðanvert landið varð víðtækt straumleysi sem varði í einn til þrjá klukkutíma víðast hvar en mun lengur í Mývatnssveit en þar varð mikil truflun á spennu sem í einhverjum tilfellum skemmdi rafmagnstæki og rafmagnstöflur. „Í Mývatnssveit varð ekki útleysing sem olli því að höggið úr kerfinu barst alla leið til viðskiptavina og er það ástæða þess að tjón varð á því svæði,“ segir í tilkynningu frá Rarki sem bætir því við að leitað sé ástæðu þess að þar hafi ekki leyst út.