Uppteknir við að skoða norðurljósin

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 67 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar af voru tveir ökumenn sem voru mældir yfir 150 km hraða/klst. Um afdrif þess sem hraðast ók má lesa um í Skessuhorni vikunnar. Lögregla hafði afskipti af bifreið í vikunni sem rásaði full mikið á veginum. Í ljós kom að um var að ræða ferðamenn sem voru nýlega komnir til landsins og voru þeir uppteknir við að fylgjast með norðurljósunum og því ekki með hugann við akstur bifreiðarinnar með þessum afleiðingum.

Uppteknir við að skoða norðurljósin - Skessuhorn