
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis átti í gær fund með þeim aðilum sem fara með öryggismál og viðbúnað í jarðgöngum. Voru þeir boðaðir í kjölfar atburðar þegar hópferðabíll varð alelda skömmu eftir að hafa komið út úr Vestfjarðagöngunum. Fyrir samgöngunefndina mættu fulltrúar frá Vegagerðinni, Samgöngustofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landsambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna og…Lesa meira








