Fréttir

true

Íþróttasalurinn á Vesturgötu opnaður

Í morgun hófst kennsla í leikfimi í íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi en í lok september á síðasta ári var skellt í lás í húsinu vegna loftgæðavandamála. Það þýddi meðal annars að leikfimi grunnskólabarna í Brekkubæjarskóla var færð í Fimleikasalinn og einnig stunduð utan dyra og allar æfingar og keppni í körfubolta og badminton færðust…Lesa meira

true

Færði Hilmari vitaverði líkan af Akranesvita

Töframaðurinn Einar Mikael kom færandi hendi til Hilmars Sigvaldasonar vitavarðar um helgina og var með í för þrívíddarprentaðan Akranesvita með ljósi í sem breytir lit. Einar færði Hilmari líkanið í tilefni 80 ára afmælis Akranesvita sem er á þessu ári. Vitinn var byggður á árunum 1943-1944 en var ekki tekinn í notkun fyrr en árið…Lesa meira

true

Tap á rekstri en engu að síður minna en áætlað hafði verið

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var farið yfir sex mánaða milliuppgjör sveitarsjóðs. Segir í bókun ráðsins að rekstur á fyrri árshelmingi hafi gengið vel og niðurstaðan væri ívið betri en áætlun hafði gert ráð fyrir. Tap upp á 172 milljónir króna var engu að síður á A-hluta sveitarsjóðs en áætlað hafði verið að…Lesa meira

true

Forvarnahópur stofnaður í Dalabyggð

Á sveitarstjórnarfundi Dalabyggðar síðastliðinn fimmtudag var staðfest erindisbréf forvarnahóps Dalabyggðar að tillögu félagsmálanefndar. Forvarnahópurinn er formlegur starfs- og samráðsvettvangur starfsmanna og stofnana sem koma að og tengjast málefnum barna og ungmenna með það að markmiði að stuðla að öruggara umhverfi og heilbrigðara líferni í samfélaginu. Í hópnum verða fulltrúar lögreglunnar á Vesturlandi, Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, félagsþjónustu…Lesa meira

true

Hátíð skógarbænda verður á Laugum í Sælingsdal

Málþing skógarbænda verður haldið á Laugum í Sælingsdal laugardaginn 12. október á degi landbúnaðarins. Það er að þessu sinni í umsjón Félags skógarbænda á Vestfjörðum. Auk Vestfirðinga koma öll félög skógarbænda að ráðstefnunni ásamt búgreinadeild skógarbænda innan Bændasamtaka Íslands. Dagskráin verður fjölbreytt en um kvöldið verður árshátíð skógarbænda haldin á sama stað. Öllum er heimill…Lesa meira

true

Göngur og réttir í Grundarfirði – myndasyrpa

Það viðraðri ágætlega á gangnamenn í Grundarfirði í síðustu viku. Fimmtudaginn 19. september var Kirkjufellið smalað og laugardaginn 21. september var Mýrarhyrna og fjallgarðurinn smalaður. Veður var gott þó að örlítil þoka hafi slæðst yfir toppa fjallanna. Það var svo dregið í dilka í Hrafnkelsstaðarétt og á Mýrum þar sem féð kom niður.Lesa meira

true

Sindri þáði boðið og sló met

Hlauparinn Sindri Karl Sigurjónsson úr Borgarnesi sló í gær 23 ára gamalt aldursflokkamet Kára Steins Karlssonar í 10 kílómetra götuhlaupi. Var þetta í annað skiptið sem Sindri slær metið en í fyrra skiptið var það ekki gilt en þá hljóp hann á 35:49 mínútum í Reykjavíkurmaraþoni, en það hlaup var ekki vottað. Sindri var boðinn…Lesa meira

true

Réttað í Reynisrétt undir Akrafjalli – myndasyrpa

Í blíðskapar veðri í gær var Akrafjallið smalað og féð rekið til Reynisréttar. Af láglendinu var mikilfenglegt að fylgjast með þegar vaskir smalar hóuðu fénu af fjallsbrún og leið það smám saman niður snarbrattar hlíðar og skriður og áleiðis til réttar. Gangnamenn voru að þessu sinni heppnir með veður og áttu von á því að…Lesa meira

true

FKA Vesturland telur í nýtt starfsár með nýrri stjórn

Ný stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu á Vesturlandi var kosin nú á dögunum. Alexandra Ýr Sigurðardóttir er nýr formaður deildarinnar, Jóhanna Elva Ragnarsdóttir gjaldkeri og Valdís Ósk Margrétardóttir ritari. Þá komu Silja Guðbjörnsdóttir inn sem samskiptatengill deildarinnar og meðstjórnendur eru þær Dr. Eyrún Eyþórsdóttir og Halldóra Guðjónsdóttir. „FKA Vesturland er vettvangur fyrir konur í atvinnulífinu…Lesa meira

true

Segja að hemja þurfi rányrkju bílastæðafyrirtækja á ferðamannastöðum

Á meira en 30 áfangastöðum ferðamanna víða um land eru að jafnaði rukkaðar 1.000 kr. fyrir að leggja bíl. Ef ekki er gengið frá greiðslu samdægurs fær bíleigandinn senda kröfu um 4.500 kr. vangreiðslugjald til viðbótar. Á flestum þessara staða er nýlega byrjað að rukka fyrir bílastæði sem áður voru gjaldfrjáls, án þess að nokkuð…Lesa meira