Hátíð skógarbænda verður á Laugum í Sælingsdal

Málþing skógarbænda verður haldið á Laugum í Sælingsdal laugardaginn 12. október á degi landbúnaðarins. Það er að þessu sinni í umsjón Félags skógarbænda á Vestfjörðum. Auk Vestfirðinga koma öll félög skógarbænda að ráðstefnunni ásamt búgreinadeild skógarbænda innan Bændasamtaka Íslands. Dagskráin verður fjölbreytt en um kvöldið verður árshátíð skógarbænda haldin á sama stað. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Allar frekari upplýsingar, svo sem dagskráin í heild sinni, verð á gistingu og leiðarlýsingu má finna á slóðinni https://www.skogarbondi.is/malthing

Hátíð skógarbænda verður á Laugum í Sælingsdal - Skessuhorn