Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj

Tap á rekstri en engu að síður minna en áætlað hafði verið

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var farið yfir sex mánaða milliuppgjör sveitarsjóðs. Segir í bókun ráðsins að rekstur á fyrri árshelmingi hafi gengið vel og niðurstaðan væri ívið betri en áætlun hafði gert ráð fyrir. Tap upp á 172 milljónir króna var engu að síður á A-hluta sveitarsjóðs en áætlað hafði verið að að tapið yrði 240 milljónir á þessum sex mánuðum. „Neikvæð afkoma skýrist að nær öllu leyti af óinnheimtum tekjum frá ríkinu vegna samninga um félagsþjónustu, en þær greiðslur berast jafnan á síðustu mánuðum ársins. Að teknu tilliti til óinnheimtra tekna var undirliggjandi rekstrarafkoma talsvert betri en áætlun gerði ráð fyrir.“

Tap á rekstri en engu að síður minna en áætlað hafði verið - Skessuhorn