
Einar Mikael að færa Hilmari vitann góða. Ljósm. Björn Lúðvíksson
Færði Hilmari vitaverði líkan af Akranesvita
Töframaðurinn Einar Mikael kom færandi hendi til Hilmars Sigvaldasonar vitavarðar um helgina og var með í för þrívíddarprentaðan Akranesvita með ljósi í sem breytir lit. Einar færði Hilmari líkanið í tilefni 80 ára afmælis Akranesvita sem er á þessu ári. Vitinn var byggður á árunum 1943-1944 en var ekki tekinn í notkun fyrr en árið 1947 vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. Orðspor vitans fer víða og margir taka eftir því frábæra starfi sem Hilmar hefur unnið fyrir Akranes með sínu vinnuframlagi og miklu kynningu. Breiðin og Akranesviti eru nú orðnir þekktir staðir til að skoða á Akranesi og vitinn orðinn eitt mesta aðdráttarafl í komu ferðamanna á Akranes.