
Forvarnahópur stofnaður í Dalabyggð
Á sveitarstjórnarfundi Dalabyggðar síðastliðinn fimmtudag var staðfest erindisbréf forvarnahóps Dalabyggðar að tillögu félagsmálanefndar. Forvarnahópurinn er formlegur starfs- og samráðsvettvangur starfsmanna og stofnana sem koma að og tengjast málefnum barna og ungmenna með það að markmiði að stuðla að öruggara umhverfi og heilbrigðara líferni í samfélaginu. Í hópnum verða fulltrúar lögreglunnar á Vesturlandi, Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, félagsþjónustu Dalabyggðar, Auðarskóla, íþróttastarfs og tómstundarstarfs í Dalabyggð.