
Íþróttasalurinn við Vesturgötu. Ljósm. vaks
Íþróttasalurinn á Vesturgötu opnaður
Í morgun hófst kennsla í leikfimi í íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi en í lok september á síðasta ári var skellt í lás í húsinu vegna loftgæðavandamála. Það þýddi meðal annars að leikfimi grunnskólabarna í Brekkubæjarskóla var færð í Fimleikasalinn og einnig stunduð utan dyra og allar æfingar og keppni í körfubolta og badminton færðust í íþróttahúsið á Jaðarsbökkum.