Fréttir

true

Forsetahjónin heimsækja Borgarnes

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, heimsækja Borgarnes í dag, föstudaginn 2. ágúst auk þess að fara til Vestmannaeyja. Þau taka þannig þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á fyrsta degi forseta í embætti. Forsetahjónin hefja daginn á heimsókn til Eyja og fara þaðan í Borgarnes, þar sem Unglingalandsmótið fer fram um verslunarmannahelgina eins…Lesa meira

true

Landsmótið hafið

Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi hófst í gær með móttöku og skráningu þátttakenda í Hjálmakletti/Menntaskóla Borgarfjarðar. Fjölmennt er því í Borgarnesi og auk þessa er talsvert um að ferðamenn sæki staðinn heim. Gríðarlega margir borgfirskir sjálfboðaliðar eru mættir til starfa við vaktir, umsjón og veitingasölu svo nokkuð sé nefnt. Tjaldsvæði mótsins er rétt fyrir ofan bæinn…Lesa meira

true

Úr sarpi Skessuhorns – Hafði mikinn tölvuáhuga og nýtti tæknina

Við höldum áfram að grípa niður í gömul viðtöl í Skessuhorni. Í Jólablaði árið 2016 birtist ítarlegt viðtal við alþýðukonuna Eliveigu Ástu Kristjánsdóttur í Borgarnesi, Ellu eins og hún jafnan var kölluð. Rætt var um lífið og listina að eldast. Ella lést í apríl á þessu ári. Hún er fædd í desember 1935 og uppalin…Lesa meira

true

Veðrið best á vesturhluta landsins

Að óbreyttu virðist Vesturland vera það svæði sem helst fær gott veður um ferðahelgina miklu sem framundan er samkvæmt Veðurstofu Íslands. Á laugardag:Austan 8-15 og væta með köflum, en 13-20 m/s syðst á landinu fram eftir degi. Yfirleitt þurrt á Norður- og Vesturlandi, en líkur á rigningu við norðurströndina. Hiti víða 9 til 18 stig,…Lesa meira

true

Hleðslugarður ON í Borgarnesi opnaður eftir helgina

Stór hleðslugarður á vegum Orku náttúrunnar verður opnaður við Digranesgötu 4 í Borgarnesi í næstu viku. Framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu mánuði og eru á lokastigi. Alls verða tólf tengi til staðar í sex hleðslustöðvum og svæðið verður að hluta til hugsað sem áfangastaður fyrir fjölskyldur, þar sem þar verður m.a. afmarkað leiksvæði fyrir börn…Lesa meira

true

Halla Tómasdóttir forseti Íslands

Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands í dag. Hún er 7. forseti landsins og önnur konan sem gegnir embættinu frá stofnun lýðveldisins árið 1944. Halla er fædd í Reykjavík 11. október 1968 og hefur starfað sem rekstrarhagfræðingur, kennari og fyrirlesari á alþjóðavettvangi. Hún er með BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og mannauðsmál…Lesa meira

true

Úr sarpi Skessuhorns – Hundrað kindur og örlögin

Rætt við Unnstein Smára Jóhannsson bónda í Laxárholti á Mýrum Í sumarfríi starfsfólks á Skessuhorni höldum við áfram að endurbirta hér áhugaverð viðtöl úr fórum blaðsins. Í Jólablaði Skessuhorns árið 2022 var rætt við Unnstein Jóhannsson bónda í Laxárholti á Mýrum: Á bænum Laxárholti í Hraunhreppi eru um sextíu mjólkandi kýr og kornrækt á sér…Lesa meira

true

Sögurölt í Ósdal í kvöld

Söfnin í Dölum og á Ströndum hafa undanfarin ár staðið saman að svokölluðum söguröltum yfir sumartímann. Eitt slíkt verður í kvöld miðvikudaginn 31. júlí kl. 19. Farið verður frá þjóðveginum eftir vegslóða fram með Ósá (rétt norðan Hólmavíkur) að Svartafljóti. Leiðin er því sem næst á jafnsléttu 2,5 km, fram og til baka. Sögumaður er…Lesa meira

true

Góð þátttaka var í Pósthlaupinu

Pósthlaupið fór fram í þriðja sinn í Dölunum laugardaginn 27. júlí og að sögn skipuleggjenda  hjá Íslandspósti var metþátttaka að þessu sinni. Pósthlaupið er 50 km utanvegahlaup frá Hrútafirði yfir í Búðardal, það er gömul landpóstaleið með um 600 metra hækkun. Í boði er einnig að hlaupa hálfa leið, um 26 km eða síðasta spölinn…Lesa meira

true

Úr sarpi Skessuhorns – Var bóndi af lífi og sál

Í Jólablaði Skessuhorns árið 2008 birtist ítarlegt viðtal við Vigfús Pétursson bónda í Hægindi í Reykholtsdal. Hann var þá búinn að stunda búskap í sex áratugi og átti enn nokkur ár eftir við það. Fyrir nokkrum árum fékk hann systurson sinn og fjölskyldu hans til að taka við búinu, byggði sér lítið hús á bæjarhlaðinu.…Lesa meira