
Forsetahjónin heimsækja Borgarnes
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, heimsækja Borgarnes í dag, föstudaginn 2. ágúst auk þess að fara til Vestmannaeyja. Þau taka þannig þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á fyrsta degi forseta í embætti.