
Í morgun skrifaði bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir viljayfirlýsingu þess efnis að ráðist verði í byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar á Akranesi. Henni verður fundinn staður í nýju húsi sem byggt verður við Mánabraut 20 en á þeirri lóð er nú fyrrum skrifstofubygging Sementsverksmiðjunnar. Það hús verður rifið og byggt á lóðinni hús á nokkrum hæðum…Lesa meira








