Eftir undirritun viljayfirlýsingarinnar. F.v. Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra, Haraldur Benediktsson bæjarstjóri, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Ljósm. mm

Viljayfirlýsing undirrituð um nýja heilsugæslustöð á Akranesi

Í morgun skrifaði bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir viljayfirlýsingu þess efnis að ráðist verði í byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar á Akranesi. Henni verður fundinn staður í nýju húsi sem byggt verður við Mánabraut 20 en á þeirri lóð er nú fyrrum skrifstofubygging Sementsverksmiðjunnar. Það hús verður rifið og byggt á lóðinni hús á nokkrum hæðum sem hýsa mun m.a. heilsugæslustöð, ráðhús Akraneskaupstaðar og mögulega starfsemi fleiri stofnana sveitarfélagsins. Fyrir liggur að þörf er á að finna nýja aðstöðu fyrir stofnanir ríkisins á Akranesi og lýsir ríkið í yfirlýsingu sinni yfir áhuga á að leigja aðstöðu í nýrri byggingu við Mánabraut 20.

Viljayfirlýsing undirrituð um nýja heilsugæslustöð á Akranesi - Skessuhorn