Horft yfir athafnasvæði Skagans 3X á Akranesi.

Óskað hefur verið eftir gjaldþrotaskiptum Skagans 3X

Starfsfólki Skagans 3X var tilkynnt á fundi í morgun að stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að óska eftir gjaldþrotaskiptum. Hjá fyrirtækinu hafa að undanförnu verið hátt í 130 starfsmenn. Í bréfi sem Jeff Davis forstjóri ritar starfsfólki kemur fram að undanfarna mánuði hefur verið lögð mikil vinna í fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins og meðal annars verið leitað nýrra fjárfesta til þess að leggja fyrirtækinu lið. Sú vinna hefur ekki skilað þeim árangri sem vonast var eftir. Fyrirtæki í þessari atvinnugrein á heimsvísu hafa síðustu ár verið í miklum vanda, vanda sem má rekja til Covid-19 og síðan stríðsins í Úkraínu. Matvælavinnsla á heimsvísu hefur ekki náð sér á strik eftir þau áföll.

Ljóst er að gjaldþrot Skagans 3X er mikið reiðarslag fyrir atvinnulíf á Akranesi. Þessi fjöldi starfsmanna í 8300 manna samfélagi jafngildir því að 2400 manna vinnustaður á höfuðborgarsvæðinu færi í þrot. Fyrirtækið hefur verið með þeim stærstu á Akranesi, þar störfuðu síðast 128 og þar af bjuggu um 100 þeirra á Akranesi.

Óskað hefur verið eftir gjaldþrotaskiptum Skagans 3X - Skessuhorn