
Umhverfisspjall í Grundarfirði
Það var margt um manninn á mánudaginn þegar boðið var í umhverfisspjall í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Umræður fóru fram um það sem íbúum liggur á hjarta þegar kemur að umhverfismálum, snyrtimennsku, framkvæmdum, gæðum í bæjarumhverfinu og fleira. Bæjarstjóri og starfsfólk Grundarfjarðarbæjar voru með kynningar á ýmsum verkefnum sem eru framundan og tóku þau vel í þær hugmyndir sem heyrðust frá íbúum.