Fréttir

true

Keppt í fjórgangi í Vesturlandsdeildinni

Keppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum hófst í gær í Faxaborg og var byrjað á fjórgangi. Mjótt var á munum efstu knapa og þurfti sætaröðun dómara til að skera úr um sigurvegara. Þau voru jöfn í efstu tveimur sætum þau Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson á Fortíð frá Ketilsstöðum og Anna Dóra Markúsdóttir á Mær frá Bergi…Lesa meira

true

Áhuginn kemur í bylgjum

Rætt við Guðbjörtu Lóu Þorgrímsdóttur glímuþjálfara í Dalabyggð um stöðu glímunnar Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir ólst upp á Erpsstöðum í Dölum en býr nú í Ásgarði sem er sauðfjárbú með sölu beint frá býli og fleiri viðbótum. Guðbjört er þriggja barna móðir, starfar sem deildarstjóri í Auðarskóla og heldur utan um æfingar Glímufélags Dalamanna. Skessuhorn heyrði…Lesa meira

true

Uppfærsla á leikritinu Með allt á hreinu í MB

Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar er um þessar mundir að æfa leikritið Með allt á hreinu, úr samnefndri kvikmynd Ágústs Guðmundssonar frá árinu 1982. Tónlistar- og grínmyndin Með allt á hreinu fjallar um tvær hljómsveitir; Stuðmenn og Gærurnar, ástir og afbrýði meðlima þeirra og spaugilegar uppákomur í ferðalagi þeirra um Ísland. Blaðamaður kíkti á æfingu og spjallaði…Lesa meira

true

Þungatakmarkanir á Innnesvegi

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur Vegagerðin takmarkað ásþunga við sjö tonn á Innnesvegi frá Krosslandi að Innra-Hólmi í Hvalfjarðarsveit. Af því leiðir að sorphirðu er frestað á svæðinu að minnsta kosti til mánudagsins 3. mars næstkomandi.Lesa meira

true

Skallagrímur tekur ekki þátt í Lengubikarnum

Jón Theodór Jónsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Skallagríms, staðfestir í samtali við Skessuhorn að liðið taki ekki þátt í Lengjubikarnum að þessu sinni. „Knattspyrnudeild Skallagríms tekur ekki þátt í lengjubikarnum þennan veturinn en stjórn og þjálfarar félagsins ákváðu í sameiningu að draga félagið úr mótinu að þessu sinni,“ segir Jón Theodór. Skallagrímur keppir í 5. deild karla…Lesa meira

true

Erla Hulda hlýtur viðurkenningu Hagþenkis

Erla Hulda Halldórsdóttir frá Minni Borg í Miklaholtshreppi hlaut í gær viðurkenningu Hagþenkis um stórmerka ævisögu Sigríðar Pálsdóttur; Strá fyrir straumi. Sigríður Pálsdóttir var uppi á 19. öld, upplifði ástir og missi og skildi eftir sig merkt bréfasafn. Erla Hulda er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og hefur rannsakað sögu kvenna í áratugi. Hún…Lesa meira

true

Bókin Leitin að peningunum komin út

Út er komin bókin Leitin að peningunum – leiðarvísir að fjárhagslegu sjálfstæði. Það er umboðsmaður skuldara sem gefur bókina út. Höfundar eru Kolbeinn Marteinsson og Gunnar Dofri Ólafsson og myndskreyting er í höndum Ránar Flygenring. Umboðsmaður skuldara hefur frá árinu 2020 staðið fyrir fræðsluverkefninu Leitin að peningunum og er bókin skrifuð í framhaldi af því.…Lesa meira

true

Þingmenn á ferð í kjördæmaviku

Kjördæmavika stendur nú yfir. Í henni fá alþingismenn tækifæri til að líta upp úr þingstörfum og hitta kjósendur sína að máli. Eitthvað hefur borið á þingmönnum í vikunni. Sumir þeirra kjósa að hafa ekki hátt um áfangastaði sína og fundi og tala inn í lokaðan hóp flokksbundinna stuðningsmanna, meðan aðrir auglýsa opna fundi. Fyrirtæki og…Lesa meira

true

Vikudagbók Bjarna Guðmanns – landsliðsmanns í körfubolta

Borgnesingurinn og landsliðsmaður Íslands í körfubolta, Bjarni Guðmann Jónsson, gerði fyrir Skessuhorn viku dagbók frá ferðalagi og daglegu lífi landsliðsins í síðustu viku. Í gangi voru tveir landsleikir og undirbúningur fyrst gegn Ungverjalandi ytra og síðan hér heima gegn Tyrklandi. Sá leikur vannst og hefur liðið því öðlast keppnisrétt á Evrópumótinu seint í sumar. Sunnudagur…Lesa meira

true

Notendaráð vill að stjórnsýslurannsókn verði gerð á byggingu búsetukjarna

Síðastliðinn þriðjudag fór fram fundur í stjórn Notendaráðs um málefni fatlaðs fólks á Akranesi. Þar var m.a. rætt um stöðu búsetukjarna fyrir fólk með fötlun sem verið hefur í byggingu við Skógarlund 42 undanfarin misseri. Verkefnið er nú strand vegna fjárhagsvandræða húsbyggjandans og telur ráðið einsýnt að stofnframlög bæði Akraneskaupstaðar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar muni…Lesa meira