Fréttir

true

Væntanleg íbúðabyggð á Varmalandi tekur breytingum

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt til auglýsingar breytingu á deiliskipulagi fyrir nýju íbúðabyggðina á Varmalandi í Stafholtstungum. Breyting nær til gatna sem heita Birkihlíð og Asparhlíð. Þetta er í þriðja skipti sem breyting er gerð á skipulagi svæðisins. Nú er í senn gerð breyting á skipulags- og byggingarskilmálum og skipulagsuppdrætti hverfisins. Í dag er íbúðahverfið óbyggt…Lesa meira

true

Fjögur söfn á Vesturlandi hljóta styrki Safnaráðs

Menningarráðherra hefur úthlutað styrkjum til safna fyrir árið 2025 en þeir eru veittir að umsögn Safnaráðs. Úthlutað var 129 styrkjum, alls 217.159.500 krónum úr Safnasjóði. Styrkir til eins árs voru 114 talsins að heildarupphæð 163.259.500 kr. til 47 styrkþega. Fjögur söfn á Vesturlandi hlutu alls ellefu styrki að þessu sinni: Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla fékk…Lesa meira

true

Gera vel og helst aðeins betur

Rætt við skógfræðinginn Valdimar Reynisson um störf hans hjá fyrirtækinu Yggdrasil Carbon Skógfræðingurinn Valdimar Reynisson starfar hjá Yggdrasil Carbon. Ygg, eins og fyrirtæki er kallað, var stofnað árið 2020 á Egilsstöðum en Valdimar er með bækistöðvar sínar á Bjarnabraut 8 í Borgarnesi. Blaðamaður bankaði upp á skrifstofu Valdimars nú á dögunum og ræddi við hann…Lesa meira

true

Góður afli og ýsa uppistaðan hjá dragnótarbátunum – myndir af kajanum

Aflabrögð í Snæfellsbæ hafa verið með besta móti í þessari viku. Eftir langa óveðurstíð hefur gefið til sjósóknar og bátar mokfiskað að undanförnu. Ýsuaflinn hjá dragnótarbátum hefur aukist talsvert og meðal annars var dragnótarbáturinn Matthías SH með 16 tonn af ýsu af 20 tonna afla. Að sögn Þórðar Björnssonar hafnarvarðar er meirihluti aflasamsetningar dragnótarbátanna ýsa…Lesa meira

true

Fljótasta amma landsins prjónar úr hundshárum

Dalakonunni Ásdísi Kr. Melsted er margt til lista lagt. Hún er nú búsett á Húsavík hvar hún starfar sem stuðningsfulltrúi. Á sumrin hefur Ásdís m.a. lagt akstur fyrir sig og náð frábærum árangri í spyrnu, einni hröðustu íþrótt sem stunduð er. Hún var m.a. akstursíþróttakona 2024 hjá Bílaklúbbi Akureyrar og hefur fengið viðurefnið Fljótasta amma…Lesa meira

true

Lyftari og rúta rákust saman

Fram kemur í dagbók lögreglu frá liðinni viku að lyftari og rúta rákust saman á Útnesvegi á Snæfellsnesi en engin slys urðu á fólki. Kona féll af hestbaki við Borgarnes og slasaðist og var hún flutt til aðhlynningar með sjúkrabifreið. Bifreið var ekið á kant og skilti í Hvalfjarðargöngum með þeim afleiðingum að bifreiðin og…Lesa meira

true

Vesturland hefur alla möguleika á að verða í fararbroddi

Rætt við Borgnesinginn Maríu Ester ferðaþjónustu- og sjálfbærnisérfræðing María Ester Guðjónsdóttir fæddist á Akranesi en ólst upp í Borgarnesi. „Við bjuggum rétt við Skallagrímsgarðinn. Ég á því ótal góðar minningar þaðan; að hlaupa um garðinn, leika mér innan um fallegu plönturnar og fylgjast með Steinku Páls sjá um garðinn af sinni einstöku alúð. En saga…Lesa meira

true

Fíkniefni og hraðakstur

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi eru 23 ökumenn grunaðir um of hraðan akstur í liðinni viku en sá sem hraðast ók mældist á 143 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Einn ökumaður er grunaður um ölvun við akstur og annar um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Einnig kom eitt mál inn á…Lesa meira

true

Landmótun annast skipulag Brákareyjar

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að ganga að tilboði Landmótunar sf. í skipulagsvinnu í Brákarey í Borgarnesi. Bæði er um að ræða nýtt deili- og aðalskipulag. Áður hafði byggðarráð lagt til; „að teknu tilliti til heildarupphæðar, tímafjölda og kostnaðar sem liggur að baki, umfangs og óvissu um umfang við skipulagsvinnu, að gengið verði að tilboði Landmótunar…Lesa meira

true

Hækka ásþunga upp í tíu tonn á Bröttubrekku

„Þeim sjö tonna ásþungatakmörkunum sem hafa verið í gildi á Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni í Norðurárdal að Snæfellsnesvegi 54 við Skógstagl verður takmörkuð við 10 tonn frá kl. 8:00 miðvikudaginn 19. febrúar 2025,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira