
Blóðbankabíllinn verður við Stillholt 16-18 á Akranesi þriðjudaginn 11. febrúar frá kl. 10:00 til 17:00. Allir sem mega gefa blóð eru hvattir til að mæta.Lesa meira

Blóðbankabíllinn verður við Stillholt 16-18 á Akranesi þriðjudaginn 11. febrúar frá kl. 10:00 til 17:00. Allir sem mega gefa blóð eru hvattir til að mæta.Lesa meira

Rætt við Valgarð S. Halldórsson rekstrarfræðing um lífið í Eyja- og Miklaholtshreppi Blaðamaður Skessuhorns var nýverið á akstri frá Stykkishólmi í Borgarnes þegar í útvarpinu gall að það væri óvissustig á fjallvegum þá sérstaklega á Snæfellsnesi og Vestfjörðum, en á Vatnaleiðinni var töluverður þæfingur og blint, sem gerði akstursskilyrði erfið. Því var tilvalið að stoppa…Lesa meira

Sjötti febrúar er merkisdagur í sögu leikskóla á Íslandi en á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara með sér sín fyrstu samtök. Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar og hefur svo verið gert um langt árabil. Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli…Lesa meira

Landsvirkjun hefur tilkynnt öllum stórnotendum raforku á suðvesturhluta landsins að skerðingum á afhendingu raforku verði aflétt frá og með morgundeginum 7. febrúar. Ástæðan er batnandi vatnsbúskapur á Þjórsársvæðinu eftir umhleypingar síðustu vikna. Þá gerir langtímaspá ráð fyrir að hiti og úrkoma verði yfir meðallagi næstu vikur og því hverfandi líkur á að grípa þurfi til…Lesa meira

Fjórði og síðasti viðburður Magnúarvöku, sem hófst með tónleikum í Brún í Bæjarsveit 8. janúar síðastliðinn, verður haldin að Fossatúni í Bæjarsveit nk. laugardag 8.febrúar. „Þar verður saman komið sannkallað einvalalið og mikið um að vera því þeir Guðmundur Pétursson gítarleikari, Einar Scheving trommuleikari og Róbert Þórhallsson bassaleikari ganga til liðs við Jakob Frímann Magnússon…Lesa meira

Akraneskaupstaður bauð meðlimum Cruise Iceland í heimsókn á þriðjudaginn til að kynna bæjarfélagið sem mögulegan áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Cruise Iceland eru hagsmunasamtök íslenskra hafna, ferðaþjónustuaðila, umboðsmanna skipafélaga og annarra sem tengjast móttöku skemmtiferðaskipa á Íslandi. Samtökin hafa það markmið að efla samstarf og upplýsingagjöf um skemmtiferðaskipaáfangastaðinn Ísland, bæði til innlendra og erlendra hagsmunaaðila. Meginhlutverk Cruise…Lesa meira

Í gærkvöldi undirrituðu samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), nýjan kjarasamning sem gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028, verði hann samþykktur. Verkfalli LSS sem hefjast átti á mánudaginn er því aflýst. Helstu atriði kjarasamningsins eru launahækkanir í samræmi við þá samninga sem gerðir hafa verið við aðila á…Lesa meira

Vegna óveðursins hefur orðið töluvert af truflunum í dreifikerfi Rarik síðasta tæpa sólarhringinn. Eldingaveður hefur tafið bilanaleit og mun gera það áfram í dag þar sem eldingaveðri er spáð á þeim svæðum þar sem bilanir hafa orðið. Búið er að finna þá hluta dreifikerfisins þar sem bilanirnar eru að mestu og verður farið í viðgerðir…Lesa meira

Kjaradeila kennara og viðsemjenda þeirra heldur áfram. Nú hafa framhaldsskólakennarar samþykkt boðun ótímabundins verkfalls í fimm skólum á landinu og á það að óbreyttu að hefjast föstudaginn 21. febrúar. Meðal þessara skóla er Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði, en einnig Menntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Borgarholtsskóli og Verkmenntaskóli Austurlands. Mikill meirihluti kennara samþykkti verkfallsboðun, samkvæmt…Lesa meira

Um tveir tugir verkefna lögreglu og annarra viðbragðsaðila á Vesturlandi voru síðdegis í gær og í gærkveldi vegna lægðarinnar sem þá gekk yfir. Síðdegis, skömmu eftir að veðrið brast á, fauk manneskja og slasaðist við að falla niður í ramp við innkeyrslu í bílakjallara við Þjóðbraut 1 á Akranesi. Lögregla og sjúkraflutningamenn hlúðu að viðkomandi…Lesa meira