Fréttir
Slökkviliðsmenn við æfingu. Ljósm. úr safni

Samið við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

Í gærkvöldi undirrituðu samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), nýjan kjarasamning sem gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028, verði hann samþykktur. Verkfalli LSS sem hefjast átti á mánudaginn er því aflýst. Helstu atriði kjarasamningsins eru launahækkanir í samræmi við þá samninga sem gerðir hafa verið við aðila á vinnumarkaði á þessu ári og hækkun annarra launa og aðrar uppbætur í samræmi við þær hækkanir á samningstímanum.