Fréttir

true

Framsókn endurnýjar umboð þriggja efstu á framboðslista sínum

Kjördæmissamband Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi samþykkti í gær framboðslista fyrir komandi þingkosningar. Röð efstu þriggja á listandum er óbreytt frá síðustu kosningum, en þá fékk flokkurinn þrjá menn kjörna á þing. Stefán Vagn Stefánsson leiðir sem fyrr listann, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir er í öðru sæti og Halla Signý Kristjánsdóttir í þriðja. Ragnar Baldvin Sæmundsson bæjarfulltrúi á…Lesa meira

true

Í gangi er endurskoðun á akstursleiðum landsbyggðarstrætó

Á vegum Vegagerðarinnar er nú í gangi heildar endurskoðun á leiðakerfi landsbyggðarvagna sem aka með fólk milli byggðarlaga. Vegagerðin er ábyrgðaraðili á rekstri landsbyggðarstrætó en býður aksturinn út. Í endurskoðun á núverandi leiðakerfi felst að allar akstursleiðir eru skoðaðar út frá gæðum, nýtni og gagnsemi. Hluti undirbúningsvinnu var að halda samráðsfundi með hagaðilum landsbyggðarstrætó síðastliðið…Lesa meira

true

Mátti ekki safna meðmælendum í anddyri Bónuss

Það eru ýmsar hindranirnar sem mætt geta frambjóðendum stjórnmálaflokkanna nú þegar kosningar eru skyndilega framundan. Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi var í dag að safna meðmælendum fyrir framboðið í verslanamiðstöðinni við Smiðjuvelli á Akranesi, þar sem Bónus er til húsa. „Ég var búinn að vera þarna í sameign verslanamiðstöðvarinnar í rúman klukkutíma þegar…Lesa meira

true

Fjórðungsmót verður haldið í Borgarnesi í júlí

Hestamannafélögin á Vesturlandi hyggjast halda fjórðungsmót vestlenskra hestamanna í Borgarnesi dagana 2.-6. júlí næsta sumar. Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt að sveitarfélagið styrkti Hestamannafélagið Borgfirðing um sex milljónir króna vegna mótsins. „Stórir íþrótta- og menningarviðburðir laða gesti í sveitarfélagið og stuðla að beinum tekjum til atvinnulífs og íbúa og óbeinum tekjum til…Lesa meira

true

Umhverfisverðlaun Akraneskaupstaðar 2024 afhent

Setning Vökudaga fór fram í Tónbergi að viðstöddu fjölmenni í gær og þar afhenti skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar umhverfisverðlaun kaupstaðarins fyrir árið 2024. Markmiðið með þessum verðlaunum er að vinna með umhverfisvitund og skapa umhyggju fyrir bænum og umhverfi hans. Einnig að vekja þannig athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli. Veitt…Lesa meira

true

Kíkt í heimsókn til listamanna á Vökudögum – Myndasyrpa

Að lokinni setningu Vökudaga í Tónbergi í gær hófst svokölluð listaganga þar sem bæjarbúar gátu kíkt í heimsókn á opnar vinnustofur ýmissa listamanna víðs vegar um bæinn og á samsýningar þar sem listamenn sýndu verk sín og tóku á móti fólki. Ljósmyndarar Skessuhorns fóru í kvöldgöngu í góða veðrinu í gærkvöldi og smelltu nokkrum myndum…Lesa meira

true

Framkvæmdum miðar ágætlega við íþróttamiðstöðina í Búðardal

Verktakafyrirtækið Eykt er þessa dagana að vinna við byggingu íþróttamiðstöðvar í Búðardal fyrir sveitarfélagið Dalabyggð. Húsið mun rúma líkamsræktarsal, sundlaug og um 600 fm íþróttahús. Fannar Þór Þorfinnsson, byggingarstjóri yfir verkinu hjá Eflu, segir að framkvæmdum miði ágætlega. „Búið er að fylla undir sökkla þar sem íþróttahúsið mun rísa og fyrsta steypan af mörgum var…Lesa meira

true

ÍATV hlýtur Menningarverðlaun Akraness í ár

Menningar- og listahátíðin Vökudagar var sett í 22. skiptið í Tónlistarskólanum á Akranesi seinni partinn í gær og við það tilefni voru menningarverðlaun Akraness fyrir árið 2024 afhent. Að þessu sinni hlaut ÍATV verðlaunin en á bak við það verkefni stendur öflugur hópur sjálfboðaliða sem heldur úti og sendir út á myndasíðunni YouTube. Fram kom…Lesa meira

true

Arna Lára og Hannes leiða lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í gærkvöldi. Arna Lára Jónsdóttir á Ísafirði leiðir listann í Norðvesturkjördæmi. Hannes S. Jónsson á Akranesi er í öðru sæti, í þriðja sæti er Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Reykhólasveit og fjórða sætið skipar Magnús Vignir Eðvaldsson í Húnaþingi vestra. Listinn í heild…Lesa meira

true

Kíktu í skólaheimsókn í Heiðarskóla

Rósahópur, elsti árgangur barna í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit, kom í sína fyrstu skólaheimsókn í Heiðarskóla á dögunum. Börnin fimm byrjuðu í íþróttasalnum í Heiðarborg hjá Sólrúnu Sigþórsdóttur kennara í skemmtilegum verkefnum. Síðan komu þau í Heiðarskóla þar sem Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri tók á móti þeim og sýndi þeim skólann. Á stöku stað urðu…Lesa meira