
Síðastliðinn laugardag var boðið upp á fría blóðsykursmælingu á Akranesi. Sem fyrr voru það Lionsklúbbur Akraness og Lionsklúbburinn Eðnur sem buðu upp á mælinguna sem fram fór í verslanamiðstöðinni við Smiðjuvelli. Að sögn lionsmannsins Ólafs Magnússonar var ágætlega mætt að þessu sinni, en vel á annað hundrað manns létu mæla blóðsykurinn. Ólafur sagði að óvenjulega…Lesa meira








