Frá afhendingu Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar 2023. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF ásamt þeim Birnu Hrönn Guðmundsdóttur, Evu Maríu Þórarinsdóttur Lange og Hannesi Pálssyni stofnendum og eigendum Pink Iceland. Ljósm. SAF

Pink Iceland verðlaunað af SAF í annað sinn

Samtök ferðaþjónustunnar afhentu Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar á 25 ára afmælisráðstefnu samtakanna í síðustu viku. Það var samhljóma niðurstaða dómnefndar að Pink Iceland skyldi hljóta Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2023. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin með viðhöfn fyrir troðfullum sal á Hilton Reykjavík Nordica, en rúmlega 400 manns tóku þátt í ráðstefnunni.

Pink Iceland verðlaunað af SAF í annað sinn - Skessuhorn