Tilkynning frá Lionsklúbbi Akraness

Tekjur af útleigu ljósakrossa renna til tækjakaupa á HVE

Eins og áður verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum nú í byrjun aðventunnar. Við verðum í garðinum á eftirtöldum dögum: Laugardaginn 25. nóvember kl. 11.00 - 15.30, sunnudaginn 26. nóvember kl. 13.00 - 15.30 og laugardaginn 2. desember kl. 13.00 - 15.30.

Við höfum lengi styrkt Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi með tækjagjöfum og munum að sjálfsögðu halda því áfram. Í fyrra afhentum við tæki að verðmæti sjö milljónir króna, sem endaði í sjö og hálfri, en það var færanlegt ómskoðunartæki. Nú munum við afhenda fjögur tæki til HVE að upphæð 5,3 milljónir króna. Tækin eru: Lífsmarkamælir, blöðruskanni, hjartagjörgæslutæki og sárasuga. Á síðasta ári styrktum við einnig Mæðrastyrksnefnd um 250.000 krónur og Björgunarfélag Akraness um 200.000 krónur.

Verðið fyrir ljósakrossana í kirkjugarðinum hækkar aðeins og verður nú 8.500 krónur. Að venju munum við endurnýja krossana eins og hægt er. Nánari upplýsingar um útleigu krossanna gefa Valdimar Þorvaldsson í síma 899-9755 og Ólafur Grétar Ólafsson í síma 844-2362. Einnig má panta krossa á netföngin oligretar@aknet.is og valdith@aknet.is

Greiða má inn á reikning: 0186-26-017754 kt: 530586-1469. Ykkar stuðningur hefur gert okkur kleift að styðja myndarlega við bakið á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og við Lionsmenn þökkum kærlega fyrir myndarlegan stuðning undanfarinna ára og vonumst til að sá stuðningur haldi áfram.

Bestu kveðjur,

Lionsklúbbur Akraness

Tilkynning frá Lionsklúbbi Akraness - Skessuhorn