Þorvaldur Árnason á Skarði hugar hér að síðustu sviðasuðunni, en veisluföng af þessu tagi eru býsna fyrirferðarmikil og þurfti að tjalda til öllum stórum pottum í sveitinni. Ljósm. mm

Svið og kveðskapur í aðalhlutverki

Í gærkveldi var boðið upp á þjóðlega skemmtun í félagsheimilinu Brautartungu í Lundarreykjadal í samstarfi Ungmennafélagsins Dagrenningar og Kvæðamannafélagsins Snorra í Reykholti. Ungmennafélagar báru á borð svið; ný, köld, söltuð og reykt, með tilheyrandi meðlæti og pönnukökum, kruðeríi og kaffi í desert. Skemmtiatriði voru svo í boði Snorra.

Svið og kveðskapur í aðalhlutverki - Skessuhorn